Ferill 130. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 130 . mál.
141. Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um málefni Blindrabókasafns.
Frá Önnu Ólafsdóttur Björnsson.
Hafa verið í gangi á vegum ráðuneytisins viðræður við Blindrafélagið og Öryrkjabandalagið um fyrirhugaðan flutning Blindrabókasafnsins úr húsi Blindrafélagsins? Ef svo er, í hvaða farvegi eru þær viðræður nú? Hefur öllum erindum aðila málsins verið svarað?