Ferill 261. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 261 . mál.


309. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um ráðgjafarhópa um þyrlukaup.

Frá Inga Birni Albertssyni.



    Hver er kostnaður af þeim nefndum og ráðgjafarhópum sem skipaðir hafa verið frá 24. maí 1991 til að athuga fyrirhuguð þyrlukaup?
    Svar óskast sundurliðað þannig:
    laun hvers nefndar- og ráðgjafarhópsmanns,
    ferðakostnaður hvers nefndar- og ráðgjafarhópsmanns,
    dagpeningar hvers nefndar- og ráðgjafarhópsmanns,
    annar kostnaður.


Skriflegt svar óskast.