Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 329 . mál.


520. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um greiðslur atvinnuleysisbóta til bænda.

Frá Jóni Helgasyni.



    Hversu margir bændur hafa sótt um atvinnuleysisbætur?
    Hversu margir bændur hafa fengið samþykktar greiðslur atvinnuleysisbóta?
    Hversu mörgum bændum hefur verið synjað um atvinnuleysisbætur og af hvaða ástæðum?