Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 341 . mál.
533. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 117. löggjafarþingi 1993–94.)
1. gr.
Við 52. gr. laganna bætist ný málsgrein, sem verður 1. mgr., svohljóðandi:
Innflutningur á þeim vörum, sem tilgreindar eru í viðauka með lögum þessum og flokkast í þar til greind tollskrárnúmer, er óheimill nema að fengnu leyfi landbúnaðarráðherra. Ráðherra setur nánari ákvæði um leyfisveitingar með reglugerð.
405 2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
VIÐAUKI
Vörur sem háðar eru innflutningsleyfi landbúnaðarráðherra.
0201 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt eða kælt:
0201.1000 – Skrokkar og hálfir skrokkar
0201.2000 – Sneitt á annan hátt, með beini
0201.3000 – Beinlaust
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst:
0202.1000 – Skrokkar og hálfir skrokkar
0202.2000 – Sneitt á annan hátt, með beini
0202.3000 – Beinlaust
0203 Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst:
– Nýtt eða kælt:
0203.1100 – – Skrokkar og hálfir skrokkar
0203.1200 – – Læri, bógur og sneiðar af því, með beini
0203.1900 – – Annað
– Fryst:
0203.2100 – – Skrokkar og hálfir skrokkar
0203.2200 – – Læri, bógur og sneiðar af því, með beini
0203.2900 – – Annað
0204 Kinda- eða geitakjöt, nýtt, kælt eða fryst:
0204.1000 – Lambaskrokkar, heilir og hálfir, nýir eða kældir
– Annað kindakjöt, nýtt eða kælt:
0204.2100 – – Skrokkar og hálfir skrokkar
0204.2200 – – Sneitt á annan hátt, með beini
0204.2300 – – Beinlaust
0204.3000 – Lambaskrokkar, heilir og hálfir, frystir
– Annað kindakjöt, fryst:
0204.4100 – – Skrokkar og hálfir skrokkar
– – Sneitt á annan hátt, með beini:
0204.4201 – – – Svið (sviðahausar)
0204.4209 – – – Annað
0204.4300 – – Beinlaust
0204.5000 – Geitakjöt
0205 0205.0000 Kjöt af hrossum, ösnum, múlösnum eða múldýrum, nýtt, kælt eða fryst
0206 Ætir hlutar af dýrum af nautgripakyni, svínum, kindum, geitum, hestum, ösnum, múlösnum eða múldýrum, nýtt, kælt eða fryst:
0206.1000 – Af dýrum af nautgripakyni, nýtt eða kælt
– Af dýrum af nautgripakyni, fryst:
0206.2100 – – Tunga
0206.2200 – – Lifur
0206.2900 – – Annað
0206.3000 – Af svínum, nýtt eða kælt
– Af svínum, fryst:
0206.4100 – – Lifur
0206.4900 – – Annað
0206.8000 – Annað, nýtt eða kælt
0206.9000 – Annað, fryst
0207 Kjöt og ætir hlutar af alifuglum í nr. 0105, nýtt, kælt eða fryst:
0207.1000 – Alifuglar ekki skornir í hluta, nýir eða kældir
– Alifuglar ekki skornir í hluta, frystir:
0207.2100 – – Hænsni af tegundinni Gallus domesticus
0207.2200 – – Kalkúnar
0207.2300 – – Endur, gæsir og perluhænsni
– Sneiðar og hlutar af alifuglum (einnig lifur), nýtt eða kælt:
0207.3100 – – Fitulifur gæsa og anda
0207.3900 – – Annað
– Sneiðar og hlutar af alifuglum annað en lifur, fryst:
0207.4100 – – Af hænsnum af tegundinni Gallus domesticus
0207.4200 – – Af kalkúnum
0207.4300 – – Af öndum, gæsum eða perluhænsnum
0207.5000 – Alifuglalifur, fryst
0208 Annað kjöt og ætir hlutar af dýrum, nýtt, kælt eða fryst:
0208.1000 – Af kanínum eða hérum
0208.2000 – Froskafætur
– Annað:
0208.9003 – – Rjúpur, frystar
0208.9005 – – Selkjöt, fryst
0208.9006 – – Hreindýrakjöt, fryst
Úr 0208.9009 – – Annars, þó ekki hvalkjöt og hvalafurðir
0209 0209.0000 Svínafita án magurs kjöts og alifuglafita (óbrædd), ný, kæld, fryst, söltuð, í saltlegi, þurrkuð eða reykt
0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig fínmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum:
– Svínakjöt:
0210.1100 – – Læri, bógur og sneiðar úr því, með beini
0210.1200 – – Slög og sneiðar af þeim
0210.1900 – – Annað
0210.2000 – Kjöt af dýrum af nautgripakyni
– Annað, þar með talið ætt mjöl, einnig fínmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum:
0210.9001 – – Alifuglalifur, þurrkuð eða reykt
0210.9002 – – Kindakjöt, saltað
0210.9003 – – Kindakjöt, reykt (hangikjöt)
Úr 0210.9009 – – Annars, þó ekki hvalkjöt og hvalafurðir
0401 Mjólk og rjómi, þó ekki kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
0401.1000 – Með fituinnihaldi sem er ekki meira en 1% miðað við þyngd
0401.2000 – Með fituinnihaldi sem er meira en 1% en ekki meira en 6% miðað við þyngd
0401.3000 – Með fituinnihaldi sem er meira en 6% miðað við þyngd
0402 Mjólk og rjómi, kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
0402.1000 – Í formi dufts, korns eða í öðru föstu formi, með fituinnihaldi sem er ekki meira en 1,5% miðað við þyngd
– Í formi dufts, korns eða í öðru föstu formi, með fituinnihaldi sem er meira en 1,5% miðað við þyngd:
0402.2100 – – Án viðbætts sykurs eða annars sætiefnis
0402.2900 – – Annað
– Annað:
0402.9100 – – Án viðbætts sykurs eða annars sætiefnis
0402.9900 – – Annars
0403 Áfir, hleypt mjólk og rjómi, jógúrt, kefír og önnur gerjuð eða sýrð mjólk og rjómi, einnig kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni, eða bragðbætt eða með ávöxtum, hnetum eða kakaói:
– Jógúrt:
0403.1001 – – Kakaóblandað
0403.1002 – – Blandað með ávöxtum eða hnetum
0403.1003 – – Drykkjarjógúrt
0403.1004 – – Bragðbætt, ót.a.
0403.1009 – – Annað
– Annað:
0403.9001 – – Kakaóblandað
0403.9002 – – Blandað með ávöxtum eða hnetum
0403.9003 – – Drykkjarvara
0403.9004 – – Bragðbætt, ót.a.
0403.9009 – – Annars
0404 Mysa, einnig kjörnuð eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni; vörur úr náttúrlegum efnisþáttum mjólkur, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni, ót.a.:
0404.1000 – Mysa og umbreytt mysa, einnig kjörnuð eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni
0404.9000 – Annað
0405 0405.0000 Smjör og önnur fita og olía fengið úr mjólk
0406 Ostur og ystingur:
0406.1000 – Nýr ostur (óþroskaður eða ógerjaður), einnig mysuostur og ystingur
0406.2000 – Hvers konar rifinn eða mulinn ostur
0406.3000 – Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn
0406.4000 – Gráðostur
0406.9000 – Annar ostur
0407 0407.0000 Fuglsegg, í skurn, ný, varin skemmdum eða soðin
0408 Fuglsegg, skurnlaus, og eggjarauða, nýtt, þurrkað, soðið í gufu eða vatni, mótað, fryst eða varið skemmdum með öðrum hætti, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
– Eggjarauða:
0408.1100 – – Þurrkuð
0408.1900 – – Önnur
– Annað:
0408.9100 – – Þurrkað
0408.9900 – – Annars
0410 0410.0000 Ætar vörur úr dýraríkinu, ót.a.
0602 Aðrar lifandi plöntur (þ.m.t. rætur), græðlingar og gróðurkvistir; sveppagró:
– Annað:
Úr 0602.9900 – – Tré og runnar, ót.a.
0604 Lauf, greinar og aðrir plöntuhlutar, án blóma eða blómknappa og grös, mosi og skófir, sem notað er í vendi eða til skrauts, nýtt, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt:
0604.9101 – – – Jólatré, án rótar; jólatrésgreinar
1501 Hreinsuð svínafeiti (Lard); önnur svína- og alifuglafeiti, brædd, einnig pressuð eða vökvaúrdregin:
– Beinafeiti og úrgangsefnafeiti:
1501.0011 – – Til matvælaframleiðslu
1501.0019 – – Annars
– Önnur:
1501.0021 – – Til matvælaframleiðslu
1501.0029 – – Annars
1502 Fita af dýrum af nautgripaætt, kindum eða geitum, hrá eða brædd, einnig pressuð eða vökvaúrdregin:
– Beinafeiti og úrgangsefnafeiti:
1502.0011 – – Til matvælaframleiðslu
1502.0019 – – Annars
– Annað:
1502.0021 – – Til matvælaframleiðslu
1502.0029 – – Annars
1503 Svínafeitisterín, svínaolía, tólgarsterín, oleóolía og tólgarolía, ekki gert að fleyti, eða unnið á annan hátt:
1503.0001 – Til matvælaframleiðslu
1503.0009 – Annars
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum:
1601.0001 – Blóðmör og lifrarpylsa
1601.0009 – Annað
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum:
1602.1000 – Jafnblönduð matvæli
1602.2000 – Úr dýralifur
– Úr alifuglum í nr. 0105:
1602.3100 – – Úr kalkún
1602.3900 – – Annað
– Úr svínum:
1602.4100 – – Læri og lærissneiðar
1602.4200 – – Bógur og bógsneiðar
1602.4900 – – Annað, þar með taldar blöndur
1602.5000 – Úr nautgripum
1602.9000 – Annars, þar með talin framleiðsla úr hvers konar dýrablóði
1901 Maltkjarni; framleiðsla úr mjöli, fín- eða grófmöluðu, sterkju eða maltkjarna, sem ekki inniheldur kakaóduft eða inniheldur kakaó sem að magni til er innan við 50% miðað við þunga, ót.a.; matvæli úr vörum í nr. 0401–0404 sem ekki innihalda kakaóduft eða innihalda kakaóduft sem að magni til er innan við 10% miðað við þunga, ót.a.:
– – Sem innihalda samanlagt 3% eða meira af nýmjólkurdufti, undanrennudufti, eggjum, mjókurfitu (svo sem smjöri), osti eða kjöti:
1901.2023 – – – Blöndur og deig, með kjötinnihaldi til framleiðslu á bökum, þ.m.t. pítsur (pizza), í nr. 1905.9051
1901.2024 – – – Blöndur og deig, með öðru innihaldi en kjöti, til framleiðslu á bökum, þ.m.t. pítsur (pizza) í nr. 1905.9059
1902 Pasta, einnig soðin eða fyllt (með kjöti eða öðrum efnum) eða unnin á annan hátt, svo sem spaghettí, makkarónur, núðlur, lasagne, gnocchi, ravíólí, kannellóní; couscous, einnig unnið:
– Fyllt pasta, einnig soðin eða unnin á annan hátt:
1902.2002 – – Með fyllingu sem inniheldur að magni til meira en 20% miðað við þunga af pylsum, kjöti, hlutum af dýrum eða blóði eða blöndum af því
Úr 1902.2009 – – Önnur sem inniheldur kjöt
Úr 1902.3000 – Önnur pasta sem inniheldur kjöt
Úr 1902.4000 – Couscous sem inniheldur kjöt
1904 Matvæli úr belgdu eða steiktu korni eða kornvörum (t.d. kornflögur); korn, annað en maís, sem grjón, forsoðið eða unnið á annan hátt:
Úr 1904.9000 – Annað sem inniheldur kjöt
1905 Brauð, sætabrauð, kökur, kex og aðrar brauðvörur, einnig með kakaói; altarisbrauð, lyfjahylki, innsiglunaroblátur, rísþynnur og áþekkar vörur:
– – Bökur, þ.m.t. pítsur (pizza):
1905.9051 – – – Sem innihalda kjöt
1905.9059 – – – Aðrar
2104 Súpur og seyði og framleiðsla í það; jafnblönduð samsett matvæli:
– Súpur og seyði og framleiðsla í það:
Úr 2104.1004 – – Aðrar súpur sem innihalda kjöt
Úr 2104.1009 – – Annað sem inniheldur kjöt
2105 Rjómaís og annar ís til manneldis, einnig með kakaóinnihaldi:
Úr 2105.0001 – Sem inniheldur kakaó, úr mjólkurafurðum
Úr 2105.0009 – Annar, úr mjólkurafurðum
2106 Matvæli, ót.a.:
– – Efni til framleiðslu á drykkjarvörum:
Úr 2106.9029 – – – Önnur sem innihalda að einhverju leyti smjör, aðra fitu, olíu eða eggjahvítu úr mjólk
Úr 2106.9049 – – Framleiðsla að meginstofni úr feiti og vatni sem inniheldur meira en 15% af smjöri eða annarri mjólkurfitu miðað við þyngd
Úr 2106.9059 – – Annað sem inniheldur að einhverju leyti smjör, aðra fitu, olíu eða eggjahvítu úr mjólk
2202 Vatn, þar með talið ölkelduvatn og loftblandað vatn, með viðbættum sykri eða öðru sætiefni eða bragðbætt, og aðrar óáfengar drykkjarvörur, þó ekki ávaxtasafar eða matjurtasafar í nr. 2009:
– Annað:
2202.9001 – – Úr mjólkurafurðum og öðrum efnisþáttum, enda séu mjólkurafurðir 75% eða meira af þyngd vörunnar án umbúða
Við gildistöku bókunar 3 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið bætast við eftirfarandi vörur:
Tollskrárnúmer Vörutegund
1517 Smjörlíki; blöndur eða framleiðsla til manneldis úr jurtafeiti eða -olíum eða þáttum úr mismunandi fitu eða olíum þessa kafla, þó ekki feiti eða olíur til manneldis eða þættir þeirra í nr. 1516:
– Smjörlíki, þó ekki fljótandi smjörlíki:
– – Sem inniheldur meira en 10% en ekki meira en 15% af mjólkurfitu miðað við þunga:
1517.1011 – – – Í smásöluumbúðum 2 kg eða minna
1517.1019 – – – Annars
– Annað:
1517.9002 – – Sem inniheldur meira en 10% en ekki meira en 15% af mjókurfitu miðað við þunga
2103 Sósur og framleiðsla í þær; blönduð bragðefni og blönduð bragðbætiefni; mustarðsmjöl, fín- eða grófmalað, og unninn mustarður:
– Annað:
Úr 2103.9009 – – Annars, sem inniheldur kjöt
2104 Súpur og seyði og framleiðsla í það; jafnblönduð samsett matvæli:
– Súpur og seyði og framleiðsla í það:
Úr 2104.1004 – – Aðrar súpur sem innihalda kjöt
Úr 2104.1009 – – Annað, sem inniheldur kjöt
– Jafnblönduð samsett matvæli:
2104.2001 – – Sem innihalda kjöt eða kjötúrgang
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er flutt í tilefni af dómi Hæstaréttar sem kveðinn var upp 20. janúar 1994 í málinu: Hagkaup hf. gegn landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Í þeim dómi var 52. gr. búvörulaga, nr. 99/1993, túlkuð með þeim hætti að ekki fælist í henni sjálfstæð regla er bannaði innflutning landbúnaðarvara nema að fengnum sérstökum heimildum stjórnvalda. Áður hafði héraðsdómur komist að gagnstæðri niðurstöðu. Lög nr. 126/1993, um breytingu á búvörulögum, þykja eftir uppkvaðningu dóms Hæstaréttar ekki fela í sér með ótvíræðum hætti bann við innflutningi landbúnaðarvara, svo sem Alþingi taldi við setningu þeirra laga.
Markmið frumvarps þessa er að tryggja í löggjöf að innflutningur tiltekinna landbúnaðarvara verði háður leyfi fram að gildistöku Úrúgvæsamnings GATT.
Landbúnaðarvörur þær, sem bannað er að flytja inn skv. 1. gr. frumvarpsins, eru tilgreindar í viðauka með lögunum. Um er að ræða sömu skilgreiningu og sömu vöruflokka og koma fram í 1. og 2. gr. reglugerðar nr. 401/1993 um takmörkun á innflutningi landbúnaðarvara. Að auki eru nokkrar fleiri vörutegundir sem heyra undir milliríkja- eða fríverslunarsamninga sem Ísland er aðili að. Innflutningur þeirra verður áfram heimilaður á grundvelli 72. gr. búvörulaga. Þeim er bætt í viðaukann til þess að auka við heimildir til álagningar verðjöfnunargjalda.
Gildistaka Úrúgvæsamnings GATT leiðir m.a. til kerfisbreytinga í innflutningsmálum landbúnaðarins. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa nefnd með fulltrúum fimm ráðuneyta til að endurskoða í heild ákvæði innflutningslöggjafar í því skyni að tryggja að hún verði í samræmi við skuldbindingar GATT.