Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 365 . mál.
558. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um viðræður við Bandaríkin eða Fríverslunarsamtök Norður-Ameríku um fríverslun.
Frá Árna R. Árnasyni.
Mun ráðherra leita eftir viðræðum við Bandaríkin eða Fríverslunarsamtök Norður-Ameríku — NAFTA — um fríverslun, markaðsaðgang, samskipti og samstarf á sviði viðskipta- og athafnalífs, miðlun nýrrar tækni og þróunarstarf og fleira sem tengist frjálsum viðskiptum nú þegar sér fyrir endann á GATT-viðræðunum?