Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 493 . mál.


759. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um kaup á slökkvibílum fyrir Flugmálastjórn.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Hvað réð úrslitum um að Flugmálastjórn gekk til samninga við erlendan framleiðanda um raðsmíði fimm minni slökkvibíla til afhendingar á árunum 1992–1996?
    Var innlendum framleiðendum gefinn kostur á sambærilegum samningum?
    Kemur til álita að slíta samstarfinu við hinn erlenda framleiðanda og gefa innlendum aðilum kost á að framleiða þá bíla sem á að afhenda á næstu árum?