Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1238, 117. löggjafarþing 547. mál: tollalög (undirboðs- og jöfnunartollar).
Lög nr. 66 19. maí 1994.
Undirboðs- og jöfnunartolla skal ekki leggja á með afturvirkum hætti nema:
Þingskjal 1238, 117. löggjafarþing 547. mál: tollalög (undirboðs- og jöfnunartollar).
Lög nr. 66 19. maí 1994.
Lög um breyting á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 115. gr. laganna:- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein sem verður 3. mgr. og orðast svo:
- Í stað núverandi 3. og 4. mgr. kemur ný málsgrein sem verður 4. mgr. og orðast svo:
- Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein sem verður 5. mgr. og orðast svo:
2. gr.
Síðari málsliður 2. mgr. 118. gr. laganna orðast svo: Slíka bráðabirgðatolla má þó ekki leggja á til lengri tíma en 12 mánaða.3. gr.
119. gr. laganna orðast svo:Undirboðs- og jöfnunartolla skal ekki leggja á með afturvirkum hætti nema:
- Þegar vara hefur verið flutt inn í miklu magni á skömmum tíma og boðin fram á undirboðskjörum sem valdið hefur tjóni innan lands. Í slíkum tilvikum má leggja undirboðstolla afturvirkt á innflutning sé það til þess fallið að koma í veg fyrir frekari innflutning á undirboðskjörum.
- Þegar vara, sem notið hefur útflutningsverðlauna, uppbóta, endurgreiðslna og þess háttar, hefur verið flutt inn í miklu magni á skömmum tíma og valdið tjóni sem erfitt er að bæta. Í slíkum tilvikum má leggja jöfnunartolla afturvirkt á innflutning sé það til þess fallið að koma í veg fyrir frekari innflutning á vörum sem njóta styrkja með þessum hætti.
- Þegar loforð um að hætta innflutningi, sem fellur undir 1.–3. mgr. 115. gr., hefur verið vanefnt.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 6. maí 1994.