Ferill 300. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
117. löggjafarþing 1993–1994.
Nr. 23/117.
Þskj. 1250 — 300. mál.
Þingsályktun
um samþykktir Vestnorræna þingmannaráðsins 1993.
Alþingi ályktar að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar að vinna að framkvæmd ályktana Vestnorræna þingmannaráðsins sem samþykktar voru á fundi ráðsins í Þórshöfn 21. júní 1993.
Samþykkt á Alþingi 6. maí 1994.