Ferill 451. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
117. löggjafarþing 1993–1994.
Nr. 27/117.
Þskj. 1254 — 451. mál.
Þingsályktun
um eflingu náttúrufræðikennslu í grunnskólum.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra í samvinnu við landbúnaðar- og umhverfisráðherra að leita leiða til að efla náttúrufræðikennslu í grunnskólum í tengslum við íslenskan landbúnað. Sérstaklega verði athugað hvort unnt sé að tengja verkefnið ferðaþjónustubændum og nota það sem lið í atvinnuátaki í dreifbýli.
Samþykkt á Alþingi 6. maí 1994.