Einkanúmer á ökutæki

104. fundur
Fimmtudaginn 23. febrúar 1995, kl. 18:58:27 (4835)


[18:58]
     Flm. (Árni Johnsen) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um einkanúmer á ökutæki. Tillöguna flytja með mér hv. þm. Sturla Böðvarsson, Egill Jónsson, Guðjón Guðmundsson, Sigríður A. Þórðardóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Árni R. Árnason og Guðmundur Hallvarðsson.
    Í tillgr. er ályktað að skora á dómsmrh. að gefa nú þegar út reglugerð sem heimilar einkanúmer á ökutæki og að sérstakt gjald á einkanúmer verði notað sem fjáröflun til að efla og auka umferðaröryggi.
    Í greinargerð er vikið að því að eftir að fastnúmerakerfi var tekið upp á bílum hefur komið í ljós mikill áhugi á að menn geti valið sér númer á bíla sína. Tillögur á Alþingi hafa líka sýnt að margir sakna gömlu skráningarmerkjanna sem höfðu fylgt einstaklingum eða fjölskyldum í langan tíma. Einnig hafa Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendasambandið sýnt málinu mikinn áhuga.
    Í núverandi fastnúmerakerfi er ekki hægt að koma til móts við þessar óskir vegna þess að bílum er langoftast úthlutað númeri áður en vitað er hver verður eigandinn og síðan fylgir númerið bílnum þrátt fyrir eigendaskipti. Auk þessa væri óskipulögð númeraúthlutun óheppileg því að henni fylgir klíkuskapur, tortryggni, brask, öfund og aðkast, eins og reynslan sýnir. Til þess að ráða bót á þessu væri hægt að taka upp svipað kerfi hér yfir einkanúmer og víða er í nágrannalöndunum, t.d. í Svíþjóð, Danmörku og Bandaríkjunum. Í þessu kerfi yrði einstaklingum boðið gegn sérstöku gjaldi að hafa sjálfvalið skráningarnúmer á bíl sínum sem er annað fastnúmerið.
    Til þess að einkanúmer verði að veruleika þarf dómsmrn. að gefa út reglugerð sem heimilar slíka notkun. Um fyrirkomulag varðandi útlit númeranna er það að segja að það fyrirkomulag kynni að vera æskilegast að númerið verði á sams konar spjöldum og fastnúmerin eru nú og eins á litinn. Þau yrðu 1--6 stafir á lengd, frjáls samsetning bókstafa eða tölustafa og eyður einnig leyfðar. Þó verði samsetningin tveir bókstafir --- eyða --- þrír tölustafir, ekki leyfð þar sem hætta væri á ruglingi við fastnúmerakerfið sem nú er í gildi. Ekki væru heldur leyfð skrásett vörumerki nema með leyfi eigenda þeirra. Einnig mundu ákveðnar siðareglur gilda um orð á númeraplöturnar. Leyfðir yrðu íslenskir bókstafir og má gera ráð fyrir að stutt íslensk mannanöfn yrðu vinsæl á bílum eða samsetning bókstafa og tölustafa. Á þennan hátt er einnig hægt að mynda sömu skráningarnúmer og menn áttu í gamla kerfinu, t.d. R-1234 eða P-500, svo að dæmi séu nefnd. Þó mætti ekki nota slík númer ef sama skráningarnúmerið er enn á bíl í gamla kerfinu sem ekki hefur verið afskráður. Einkanúmeraspjöldin yrðu frábrugðin fastnúmeraspjöldum og er auðvelt að koma því fyrir.
    Um fyrirkomulag varðandi umskráningar er það að segja að þegar bíleigandi fengi einkanúmer afhent yrði hann að skila fastnúmeraspjöldum sem fyrir eru á bílnum, þ.e. ef ekki er um að ræða nýjan bíl. Þegar bíllinn er seldur eru eigendaskipti ekki skráð fyrr en búið er að panta nýjar fastnúmeraplötur eða önnur einkanúmer. Seljandinn getur síðan flutt einkanúmer sín yfir á annan bíl, en áður en það er gert þarf að þrykkja nýtt verksmiðjunúmer og fastnúmer með litlum stöfum á spjöldin.
    Hægt verður að leggja einkanúmer inn til geymslu eins og önnur númer og verða þau geymd í allt að eitt ár. Hver einstaklingur má ekki eiga nema eitt númerapar í geymslu og má þar að auki ekki eiga fleiri einkanúmer en bíla. Þetta er gert til að koma í veg fyrir brask með það sem menn kalla góð einkanúmer.
    Varðandi kostnað má gera ráð fyrir hærra stofngjaldi einkanúmera en fastra númera á bíla. Í sumum löndum þar sem boðið er upp á einkanúmer eru þau margfalt dýrari en föstu númerin, allt að 10--20 sinnum dýrari. Sérstaða Íslands er margvísleg. Samfélagið hér er mun persónulegra en í fjölmennari löndum og stéttaskipting er ekki í eðli Íslendinga eins og svo margra þjóða sem við þekkjum, jafnvel nágranna- og frændþjóða og í ljósi þess er ekki boðlegt að hafa verð á einkanúmerum það hátt að þau verði einhver forréttindi þeirra hæst launuðu í þjóðfélaginu. Jafnframt má benda á að gamla númerakerfið var mun persónulegra en það nýja. Menn fylgdust með bílum eins og vinum og vandamönnum og á margan hátt létti það númerakerfi Íslendingum að hafa persónulegt samband sem skiptir þá svo miklu máli. Með einkanúmerakerfi eins og hér er getið um er unnt að koma til móts við óskir margra Íslendinga í þessum efnum. Lagt er til að gjald fyrir einkanúmer verði tvisvar til þrisvar sinnum hærra en fyrir fastnúmer eða 10--15 þús. kr. Jafnframt er lagt til að tekjur af einkanúmerum renni til þess að efla og auka umferðaröryggi sem er mikilvægt baráttumál fyrir íslenskt þjóðfélag í dag.
    Ég á von á því að hæstv. dómsmrh. verði mjög jákvæður í afgreiðslu þessa máls og að lokinni umræðu legg ég til að því verði vísað til allshn.