Afgreiðsla sjúkraliðafrv. úr nefnd

106. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 01:16:50 (5074)


[01:16]
     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég er nú komin í stólinn, til að benda á eitt, virðulegi forseti, það að þetta mál var aldrei borið undir atkvæði í nefndinni hjá okkur þannig að ég sé ekki að það sé búið að afgreiða þetta mál úr nefndinni. Hitt er annað mál að það barst auðvitað út hvernig fundinum hefði lokið í dag og við gerðum þessa bókun, sem fræg er orðin, þegar við sáum að málið mundi ekki fara út úr nefndinni í kvöld. En ég get ekki séð af hverju er verið að ásaka fólk fyrir atkvæði sem það hefur aldrei greitt.