Fréttaflutningur ríkissjónvarpsins af verðmun á landbúnaðarvörum

16. fundur
Fimmtudaginn 20. október 1994, kl. 13:30:14 (633)



     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og áður hafði verið tilkynnt hefst nú utandagskrárumræða. Málshefjandi er hv. 3. þm. Austurl., Egill Jónsson, og efni umræðunnar er fréttaflutningur ríkissjónvarpsins af verðmismun á landbúnaðarvörum hérlendis og erlendis. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapalaga, þ.e. hálftíma umræða.