Fjáraukalög 1994

64. fundur
Þriðjudaginn 20. desember 1994, kl. 15:33:16 (2930)



[15:33]
     Matthías Bjarnason (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég verð að segja að þetta þskj. var ekki lagt fram í þingflokki Sjálfstfl. Það var ekki fyrr en maður kom hér í þingdeild að maður sá þetta þskj. Er ekki fyllsta ástæða til þess að fresta umræðu um þetta mál þegar fjárln. ætlar að taka sér stöðu og vera einhver yfirnefnd yfir þingkjörinni nefnd og forsrn.? Ég tel fyllstu ástæðu til þess og ég tek undir þá kröfu sem stjórnarandstæðingar hafa lagt fram í dag. Það er siðlaust að halda þessari umræðu áfram nema þetta mál verði rætt í þingflokkum stjórnarliðsins.