Fjáraukalög 1994

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 15:06:47 (3036)


[15:06]
     Eggert Haukdal (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég hjó ekki meira að hv. 4. þm. Norðurl. e. en hinum en kjarni málsins er sá að þessir hæstv. ráðherrar hafa allir brugðist í þessum efnum og ég var ekkert að kenna einum um frekar en öðrum. Svo er mál að skýra frá því að þessir menn urðu ráðherrar af því að við margir hv. alþm. studdum þá og berum þá að sjálfsögðu okkar hluta af þessari sök en hún liggur fyrir hjá öllum þessum hæstv. ráðherrum.