Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 02:05:41 (3155)

[02:05]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegur forseti. Ég vil vekja athygli á því að hér er farin sú leið að beita 6. gr., heimildargreininni í fjárlögum, til þess að breyta eignarhluta ríkisins í Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar í hlutafé. Ég vil sérstaklega vara við þessu og ég vil benda á það einnig að í 6. gr. í fjárlagafrv. sem slíku, ekki í brtt., er einnig heimildargrein um að selja það sem eftir er af hluta ríkisins í Lyfjaverslun Íslands. Ég minni á að ríkisstjórnin kom ekki í gegnum Alþingi fyrir áramót frv. til laga til heimilda til þeirrar sölu. Ég tel að hér sé Alþingi að fara yfir á mjög varhugaverða braut og greiði því atkvæði gegn þessum lið.