Lánsfjárlög 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 13:54:49 (3329)


[13:54]
     Páll Pétursson :
    Frú forseti. Þar sem veðtaka í fiski, sem e.t.v. kann að skila sér 1996, er að mínu mati næsta hæpin og þar hæstaréttardómur hefur gengið sem telur hliðstæð veð ekki gild þá segi ég nei.