Ferill 27. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 27 . mál.


27. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um forgangsröð kennslu erlendra tungumála í grunnskólum.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1 .     Er menntamálaráðherra því meðmæltur að breytt verði forgangsröð erlendra tungumála sem kennd eru í grunnskólum?
     2 .     Er fyrirhugað að breyta fyrirkomulagi kennslu í erlendum tungumálum þannig að hún hefjist fyrr eða síðar en nú er gert ráð fyrir?