Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 81 . mál.


81. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um mengun af völdum erlendra skipa.

Frá Petrínu Baldursdóttur.



     1.     Hvert er hlutfall mengunaróhappa sl. 20 ár hjá skipum undir stjórn erlendra skipstjórnarmanna á sjó umhverfis Ísland?
     2.     Telur ráðherra þörf á því að setja sérstakar reglur um för erlendra skipa hér við land til að draga úr líkum á mengunaróhöppum?