Ferill 85. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 85 . mál.
85. Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um útflutning á vikri.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
1 . Hve mikið var flutt út af vikri í tonnum talið á árunum 1992–93 og það sem af er þessu ári?
2 . Var um einhvern útflutning að ræða á unnum vikri á fyrrnefndu tímabili, t.d. þurrkuðum, flokkuðum, til byggingariðnaðar eða til annarra nota?
3 . Hvernig eru markaðshorfur varðandi þennan útflutning?
4 . Hefur verið unnið að markaðssetningu erlendis á vikri í öðru formi en sem hráefni?
5 . Til hvaða landa er vikur fluttur út?