Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 113 . mál.


116. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um markaða tekjustofna ríkisins.

Frá Inga Birni Albertssyni.



     1 .     Hverjir voru markaðir tekjustofnar ríkisins árin 1988–94?
     2 .     Hversu háar tekjur hlutust af þeim hverjum fyrir sig og hve hátt hlutfall teknanna rann til hins markaða tekjustofns og hvernig var þeim fjármunum ráðstafað sem ekki runnu til hins afmarkaða verkefnis, sundurliðað á árin 1988–94?
     3 .     Hverjir eru hinir mörkuðu tekjustofnar fyrir árið 1995 og hvernig er áætlað að verja tekjum af þeim á árinu 1995?


Skriflegt svar óskast.