Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1993–94. – 1063 ár frá stofnun Alþingis.
117. löggjafarþing. – 164 . mál.


177. Fyrirspurn


til sjávarútvegsráðherra um Þróunarsjóð sjávarútvegsins.

Frá Petrínu Baldursdóttur.


    Hve oft hefur Þróunarsjóðurinn greitt styrki til úreldingar fiskiskipa frá gildistöku laga um sjóðinn?
    Hve gömul eru þau fiskiskip sem hafa verið úrelt og frá hvaða landshlutum eru þau?
    Hversu margar úreldingarumsóknir liggja fyrir sem ekki er búið að afgreiða?
    Hefur eitthvert þeirra skipa, sem greitt hefur verið fyrir, jafnframt fengið greitt fyrir tjón sem bætt er af vátryggingafélagi?


Skriflegt svar óskast.