Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 196 . mál.


220. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um staðgreiðslu af launum blaðsölubarna.

Frá Guðrúnu Helgadóttur.



     1 .     Hver verður tekjuaukning ríkissjóð árið 1995 komi til staðgreiðslu af sölulaunum blaðsölubarna?
     2 .     Hversu mikið vega þær tekjur á móti tapi ríkissjóðs vegna niðurfellingar hátekjuskatts sem ákveðin hefur verið?
     3 .     Krefst þessi nýja skattlagning aukins mannafla í skattkerfinu?