Ferill 200. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 200 . mál.
226. Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um lausagöngu búfjár á Reykjanesi.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
1. Viðgengst enn þá lausaganga búfjár á Reykjanesi vestan girðingar frá Heiðmörk að Kleifarvatni?
2. Hvenær er fyrirhugað að ljúka uppsetningu girðingar frá Kleifarvatni í Sýslustein?
3. Hver er fjöldi búfjár á Reykjanesi vestan þeirrar línu er framangreindar girðingar mynda?
Skriflegt svar óskast.