Ferill 226. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 226 . mál.


261. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um framlög af fjárlagaliðnum 02-750 Skólar fyrir fatlaða.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hversu mörg sveitarfélög sóttu um framlag til dagvistar fyrir fatlaða forskólanemendur árin 1993 og 1994?
    Hversu mörg sveitarfélög fengu eða fá framlag á árunum 1993 og 1994 til þessarar þjónustu?
    Hve háar upphæðir er um að ræða hvort ár á hvert sveitarfélag?
    Hver er heildarkostnaður sveitarfélaga af dagvist fyrir fatlaða forskólanemendur árin 1993 og 1994?


Skriflegt svar óskast.