Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 341 . mál.
540. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um tollstofn hjá OECD-löndum.
Frá Inga Birni Albertssyni.
Hvað myndar tollstofn við innflutning hjá OECD-löndum, hverju fyrir sig?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Við innflutning til Íslands er m.a. lagður tollur á frakt, tryggingu, pökkun. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig aðrar þjóðir innan OECD haga tollun vara við innflutning.