Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 346 . mál.


568. Tillaga til þingsályktunar



um nýtt mat á jarðskjálftahættu og styrkleika mannvirkja á Suðurlandi.

Flm.: Guðni Ágústsson, Margrét Frímannsdóttir, Eggert Haukdal,


Árni Johnsen, Jón Helgason.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera ítarlega úttekt á íbúðarhúsum, atvinnuhús næði og öðrum mannvirkjum á Suðurlandi með tilliti til jarðskjálftahættu. Í framhaldi af slíkri úttekt verði gerð áætlun um úrbætur til að styrkja eða úrelda mannvirki sem talin eru ótraust. Jarðskjálfta- og jarðfræðingum verði falið að kortleggja nákvæmlega svæði með tilliti til stað bundinnar jarðskjálftahættu, svo sem staði þar sem hætta er á sprungum á yfirborði í jarðskjálft um og staði þar sem laus yfirborðslög geta magnað upp áhrif þegar jarðskjálftar verða. Að þessu verði unnið í samstarfi við sveitarfélög á Suðurlandi.

Greinargerð.


    Þótt farið sé eftir byggingarstaðli við byggingu húsa er ekki öruggt að þau muni þola stóran jarðskjálfta. Þekkingunni sem byggingarstaðlar eru grundaðir á fleygir stöðugt fram og oft mundu menn hafa byggt öðruvísi hér áður fyrr ef þekkingin hefði verið meiri. Þá er ekki ólíklegt að stundum hafi reglugerðum ekki verið fylgt nægilega vel eftir við gerð húsa og undirstöðu þeirra. Einnig eru dæmi um að burðarvirki húsa hafi verið veikt með breytingum eftir bygging artíma. Markmiðið með úttektinni er að finna veika hlekki eða slysagildrur út frá þeirri þekk ingu sem best gerist nú. Með úrbótum á grundvelli slíkrar úttektar má draga úr því tjóni sem af stórum skjálfta gæti hlotist.
    Þekkingu á jarðskjálftasvæði Suðurlands hefur mjög fleygt fram á síðari árum. Gert hefur verið áhættumat sem byggir á sögulegri reynslu og almennri þekkingu á eðli Suðurlandssvæðis ins. Þetta áhættumat er gróft í þeim skilningi að það tekur ekki til staðbundinna frávika sem geta verið veruleg innan svæðisins. Sprungur hafa verið kortlagðar, og um sumar er vitað að þær hafa breyst í stórum jarðskjálftum. Með nýrri tækni er unnt að meta staðbundin frávik frá almennu áhættunni á svæðinu. Með nýja jarðskjálftamælanetinu, svokölluðu SIL-kerfi, er unnt að rekja virkar sprungur neðan jarðar þótt þær sjáist ekki á yfirborði sem og að finna spennustefnu, hvort tveggja út frá mælingum á smáskjálftum. Þá er einnig unnt með staðbundnum mælingum og jarðfræðilegu mati að finna staði þar sem líkur eru á að jarðskjálftabylgjur frá stórum skjálftum muni geta magnast upp.