Ferill 390. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 390 . mál.
627. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um hlutabréfaeign einstaklinga.
Frá Vilhjálmi Egilssyni.
1 . Hve háa fjárhæð telja einstaklingar fram sem hlutabréfaeign?
2 . Hve háa fjárhæð telja einstaklingar fram sem arð af hlutabréfum?
3 . Hverjar eru skatttekjur ríkissjóðs af hlutabréfaeign einstaklinga, þ.e.:
a . hve margir einstaklingar greiða eignarskatt af hlutabréfaeign og hve mikið,
b . hve margir einstaklingar greiða tekjuskatt af hlutabréfaeign og hve mikið?
Skriflegt svar óskast.