Stjórn fiskveiða

16. fundur
Fimmtudaginn 08. júní 1995, kl. 18:26:41 (528)

     Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson) :
    Forseti vill geta þess að ráð er fyrir því gert að halda þessari umræðu áfram fram eftir kvöldi og ljúka henni. Ekki er á þessu stigi máls heldur gert ráð fyrir því að gert verði á henni hlé en hér niðri í veitingastofunni verður borinn fram matur og forseti gerir ráð fyrir því að menn reyni eftir föngum að hlaupa og fá sér matarbita án þess að gera þurfi formlega hlé á umræðunni.