Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 28 . mál.
76. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 12. júní.)
1. gr.
2. mgr. 5. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 87/1994, orðast svo:
Falli veiðileyfi skips skv. 1. mgr. þessarar greinar niður má veita nýju eða nýkeyptu sam
2. gr.
6. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 87/1994, orðast svo:
Bátar minni en 6 brl., sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum með dagatakmörk
Veiðar skulu bannaðar í desember og janúar sem og í sjö daga um páska og verslunar
Krókabátum gefst frá og með fiskveiðiári því er hefst 1. september 1995 kostur á að velja milli þess að stunda veiðar með þorskaflahámarki skv. 4. mgr. og þess að stunda veiðar með viðbótarbanndögum eins og nánar er lýst í 5.–9. mgr.
Þorskaflahámark þeirra báta er þann kost velja skal samtals nema sama hlutfalli af 21.000 lestum, miðað við óslægðan fisk, og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í heildarþorskafla krókabáta á almanaksárinu 1994. Skal því skipt milli einstakra báta á grundvelli veiðireynslu viðkomandi báts almanaksárin 1992, 1993 og 1994. Skal við þá skiptingu fyrst taka tvö bestu árin varðandi þorskafla hvers báts og reikna meðalþorskafla bátsins á þeim árum. Sá hluti þannig reiknaðs meðalafla fyrir hvern bát, sem umfram er 50 lestir, skal síðan margfaldaður með stuðlinum 0,7. Þannig umreiknaður meðalafli tveggja bestu áranna skal lagður til grund
Fyrir þá báta sem velja viðbótarbanndaga skal fiskveiðiárinu skipt upp í fjögur veiðitímabil og hámarksafli þeirra ákveðinn á hverju tímabili. Veiðitímabil eru sem hér segir:
1. tímabil 1. september til 30. nóvember.
2. tímabil 1. febrúar til 30. apríl.
3. tímabil 1. maí til 30. júní.
4. tímabil 1. júlí til 31. ágúst.
Sameiginlegur hámarksafli þeirra báta er þennan kost velja telst sama hlutfall af 21.000 lestum af þorski, miðað við óslægðan fisk, og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í heild
Fari þorskafli þeirra báta er þennan kost velja á einhverju veiðitímabili fram úr fyrrgreindu hámarki skal banndögum á sama tímabili á næsta fiskveiðiári fjölgað, í fyrsta sinn á fiskveiði
Viðbótarbanndagar skulu falla á þær helgar sem veiðar eru ekki bannaðar á skv. 2. mgr. á viðkomandi tímabili og síðan bætast framan við fasta banndaga á viðkomandi tímabili. Þeim skal skipt eins jafnt niður og unnt er. Þó skulu fyrstu sjö viðbótarbanndagarnir á fyrsta tímabili vera í lok tímabilsins, fyrstu sjö viðbótarbanndagarnir á öðru tímabili vera í upphafi þess og fyrstu sjö viðbótarbanndagarnir á þriðja tímabili vera dagarnir fyrir sjómannadag. Á viðbótar
Sé einn maður í áhöfn krókabáts er óheimilt að róa með og eiga í sjó fleiri en 12 bala af línu en 20 bala séu tveir eða fleiri í áhöfn. Miðað er við að 420 krókar séu á línu í hverjum bala.
Fiskistofa skal fyrir 1. júlí 1995 senda útgerðum tilkynningu um reiknað þorskaflahámark hvers báts og forsendur þess og hafa útgerðir mánaðarfrest til að tilkynna um val milli þorskaflahámarks og viðbótarbanndaga og sama frest til að koma að athugasemdum. Velji út
Heimilt er án sérstaks leyfis að stunda fiskveiðar í tómstundum til eigin neyslu. Slíkar veiðar er einungis heimilt að stunda með handfærum án sjálfvirknibúnaðar. Afla, sem veiddur er samkvæmt heimild í þessari málsgrein, er óheimilt að selja eða fénýta á annan hátt.
3. gr.
4. mgr. 12. gr. laganna, sbr. 7. gr. laga nr. 87/1994, fellur niður.
4. gr.
Við 17. gr. laganna, sbr. 12. gr. laga nr. 36/1992, bætist ný málsgrein er verður 4. mgr. og orðast svo:
Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að settur skuli, á kostnað útgerða, sjálfvirkur eftir
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við upphaf þess fiskveiðiárs er hefst 1. september 1995. Ákvæði 1. gr. koma þó þegar til framkvæmda. Hafi bindandi samningur verið gerður fyrir gildistöku laga þessara um kaup eða smíði á nýjum báti í stað krókabáts eða um breytingar á slíkum báti skulu eldri reglur um endurnýjun þó gilda um þann bát enda hafi hann fengið útgefið haffærisskírteini fyrir 31. ágúst 1995.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Aflaheimildum skv. 1. mgr. skal árlega úthlutað til þeirra skipa sem orðið hafa fyrir mestri skerðingu við úthlutun aflamarks frá fiskveiðiárinu 1991/1992 til þess fiskveiðiárs er úthlutun
Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um úthlutun samkvæmt þessari grein. Skal hann m.a. kveða á um við hvaða tíma skuli miða aflahlutdeild. Þá er ráðherra heimilt að ákveða að litið skuli í heild á veiðiheimildir skipa í eigu sömu útgerðar varðandi bótaútreikn
Á fiskveiðiárinu 1994/1995 skal úthluta sérstaklega til jöfnunar þeim hluta aflahámarks vegna línutvöföldunar skv. 6. mgr. 10. gr. sem ekki nýttist við línuveiðar í nóvember til febr
Við ráðstöfun aflaheimilda skv. 9. gr. á því tímabili sem um getur í 1. mgr. þessa ákvæðis er heimilt að taka mið af breytingum í aflamarki sem orðið hafa á lengra tímabili en milli fisk
II.
III.