Ferill 42. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 42 . mál.
135. Frumvarp til laga
um úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
(Eftir 2. umr., 15. júní.)
1. gr.
Setja skal á fót nefnd er hafi það hlutverk að ákveða fiskverð sem nota skal við uppgjör á aflahlut áhafnar einstakra skipa svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.
Í nefndinni eiga sæti sjö menn, einn tilnefndur af Farmanna- og fiskimannasambandi Ís
Úrskurðarnefnd ræður starfsfólk eða semur við aðra aðila um að annast starfsemi fyrir nefndina eftir því sem hagkvæmt þykir.
2. gr.
Úrskurðarnefnd skal afla ítarlegra gagna um fiskverð. Skal hún með skipulögðum hætti vinna úr upplýsingunum sundurliðað yfirlit um fiskverð á einstökum landsvæðum. Nefndin skal reglulega birta upplýsingar um fiskverð þannig að þær gagnist útvegsmönnum og sjó
3. gr.
Takist ekki samningar milli útgerðar og áhafnar fiskiskips um fiskverð sem nota skal við uppgjör á aflahlut þegar afli skipsins er afhentur eða seldur aðila sem telst skyldur útgerðinni geta þau heildarsamtök sjómanna og útvegsmanna sem standa að tilnefningu úrskurðarnefndar skv. 1. gr. hvor um sig skotið málinu til úrlausnar nefndarinnar, í samræmi við ákvæði kjara
Á sama hátt geta heildarsamtök sjómanna skotið til nefndarinnar ákvörðun fiskverðs í við
Útgerð og viðskiptaaðili hennar teljast skyld í þessu sambandi ef þau eru í eigu eða rekstri sama aðila, eða ef sami aðili á meiri hluta beggja fyrirtækjanna, svo sem meiri hluta stofnfjár eða hlutafjár eða fer með meiri hluta atkvæðisréttar í þeim báðum eða hefur með öðrum hætti raunveruleg yfirráð þeirra beggja. Sama á við ef annað fyrirtækið hefur raunveruleg yfirráð yfir hinu með eignaraðild, atkvæðisrétti eða með öðrum hætti.
4. gr.
Úrskurðarnefnd skal ákvarða fiskverð til uppgjörs á aflahlut sjómanna í þeim tilvikum sem til hennar er skotið skv. 3. gr. Gildir ákvörðunin eingöngu um fiskverð gagnvart áhöfn þess skips sem málskotið varðar en ekki gagnvart áhöfnum annarra skipa sömu útgerðar. Ákvörðun nefndarinnar um fiskverð í viðskiptum milli óskyldra aðila, sbr. 3. gr., gildir um verð í öllum slíkum viðskiptum á gildistíma ákvörðunar.
Ákvörðun nefndarinnar nær til verðs fyrir afla sem landað er eftir að málinu var skotið til hennar ef ákvörðun varðar viðskipti milli skyldra aðila, en til verðs fyrir afla sem landað er eftir að ákvörðun nefndarinnar er tilkynnt aðilum ef hún varðar viðskipti milli óskyldra aðila. Nefndin ákveður sjálf hversu lengi ákvörðun hennar skuli gilda. Þó skal hún aldrei gilda leng
Ákvörðun nefndarinnar um fiskverð, hvort sem hún varðar viðskipti milli skyldra aðila eða óskyldra, gildir ekki þegar afli er seldur á innlendum eða erlendum uppboðsmörkuðum.
5. gr.
Úrskurðarnefnd skal við ákvörðun sína taka mið af upplýsingum sem safnað hefur verið á hennar vegum skv. 2. gr.
Nefndin skal við ákvörðun sína taka mið af því fiskverði sem algengast er við sambærilega ráðstöfun afla. Skal í því sambandi tekið mið af verði í nærliggjandi byggðarlögum fyrir sam
6. gr.
Úrskurðarnefnd skal leita upplýsinga hjá útgerð og áhöfn um öll þau atriði er máli kunna að skipta varðandi úrlausn í tilteknu máli. Er þessum aðilum svo og þeim aðilum sem hafa átt viðskipti með afla við útgerðina skylt að veita nefndinni allar þær upplýsingar er máli geta skipt og aðgang að öllum gögnum sem þýðingu hafa.
7. gr.
Þegar eftir að máli er skotið til úrskurðarnefndar skulu þeir nefndarmenn, sem tilnefndir eru af heildarsamtökum sjómanna og útvegsmanna, taka málið til umfjöllunar. Nái þeir ekki samkomulagi um ákvörðun fiskverðs innan 14 daga ef málið varðar fiskverð í viðskiptum skyldra aðila en innan sjö daga varði málið viðskipti óskyldra skal málið tekið fyrir í fullskip
Samkomulagi nefndarinnar um fiskverð skulu fylgja forsendur þess en úrskurður fullskip
8. gr.
Ákvörðun úrskurðarnefndar um fiskverð hvort sem hún byggist á samkomulagi eða úr
9. gr.
Þegar úrskurður er kveðinn upp ræður afl atkvæða úrslitum í úrskurðarnefnd. Um hæfi nefndarmanna til meðferðar einstaks máls og málsmeðferð að öðru leyti fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, eftir því sem við getur átt.
10. gr.
Nefndarmönnum er óheimilt að skýra óviðkomandi aðilum frá því sem þeir komast að í störfum sínum.
11. gr.
Kostnaður af störfum nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði. Þó skulu heildarsamtök útvegs
12. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi 1.–9. gr. laga nr. 79 19. maí 1994, um samstarfsnefnd sjómanna og útvegsmanna og um breytingu á lögum nr. 24 7. maí 1986, um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins, með síðari breytingum.