Forseti (Guðni Ágústsson):
Svohljóðandi bréf hefur borist, dags. 22. maí 1996:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavík, Ásta B. Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv.``
Ásta B. Þorsteinsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.