Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Út af Framkvæmdasjóði fatlaðra er það að segja að þetta er nú nákvæmlega ekki eins og það stendur í fjárlögunum vegna þess að söluandvirði Sólborgarhúsanna á Akureyri gengur til Framkvæmdasjóðsins þannig að þar eru milli 80 og 90 millj. til viðbótar.