Ferill 68. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 68 . mál.


68. Frumvarp til laga



um breytingu á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig Pétursdóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir,


Pétur H. Blöndal, Ólafur Örn Haraldsson, Arnþrúður Karlsdóttir,


Einar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Kristjánsson, Gunnlaugur M. Sigmundsson,


Tómas Ingi Olrich, Valgerður Sverrisdóttir, Egill Jónsson,


Arnbjörg Sveinsdóttir, Jón Kristjánsson, Árni Johnsen,


Ísólfur Gylfi Pálmason.



1. gr.


    1. mgr. 79. gr. laganna orðast svo:
     Fjármálaráðherra er heimilt að reka eða leyfa rekstur verslana með tollfrjálsar vörur, þar á meðal áfengi og tóbak, í flugstöðvum á Reykjavíkurflugvelli, Keflavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli, Sauðárkróksflugvelli og Egilsstaðaflugvelli í tengslum við farþegaflutning milli landa. Heimild þessi gildir einnig um sams konar rekstur í Reykjavíkurhöfn, Ísafjarðarhöfn, Akureyrarhöfn, Seyðisfjarðarhöfn og Vestmannaeyjahöfn. Birgðir slíkra verslana má geyma í tollfrjálsum birgðageymslum sem eingöngu eru ætlaðar til þeirra nota.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í 1. mgr. 79. gr. tollalaga er að finna heimild til þess að reka eða leyfa rekstur verslana með tollfrjálsar vörur í stærstu flugstöðvum landsins. Brýnt er vegna mikillar fjölgunar erlendra ferða-, fiski- og farmanna sem hafa viðkomu með skipum í ýmsum höfnum hér á landi að víkka út heimildina svo að hún nái einnig til helstu hafna landsins.
    Á síðasta sumri fjölgaði mjög mikið þeim skemmtiferðaskipum sem komu til ýmissa hafna landsins, alls 115 skemmtiferðaskip, en auk þess kom Norræna 14 sinnum til Seyðisfjarðar. Til marks um þá fjölgun skemmtiferðaskipa sem til landsins koma má geta þess að árið 1992 komu 23 skip til Reykjavíkur með um 11.000 farþega og 5.000 manns í áhöfnum. Í sumar komu til Reykjavíkur 51 skip með 21.348 farþega og 10.000 manns í áhöfnum. Árið 1994 komu 23 skemmtiferðaskip til Akureyrar með um 11.000 farþega og 5.900 manns í áhöfnum. Í sumar komu til Akureyrar 38 skip með um 18.000 farþega og 10.000 manns í áhöfnum. Sem fyrr segir kom Norræna 14 sinnum til Seyðisfjarðar og með því skipi 6.438 farþegar auk þess sem þrjú önnur skemmtiferðaskip höfðu þar viðkomu. Til Vestmannaeyja komu 17 skemmtiferðaskip og sex til Ísafjarðar. Auk þess höfðu nokkur skip viðkomu í Stykkishólmi, Grundarfirði og Húsavík. Þótt ekki liggi fyrir
Prentað upp.

upplýsingar um fjölda skemmtiferðaskipa sem koma til Íslands sumarið 1996 er búist við að þeim muni enn fjölga. Flest þessara skipa hafa skamma viðdvöl í höfn og því er nauðsynlegt að bæði farþegar og áhafnir þeirra hafi möguleika á að versla í tollfrjálsri verslun sem býður upp á fjölbreytt vöruúrval og er í tengslum við hafnarbakka. Enn fremur hefur aukist gífurlega sá fjöldi erlendra fiskiskipa sem leita til hafnar vegna ýmiss konar þjónustu. Það er enginn vafi á að áhafnir þeirra munu nýta sér þann möguleika sem tollfrjáls verslun býður upp á. Þannig munu slíkar tollfrjálsar verslanir auka tekjumöguleika þjóðarinnar og skapa ný atvinnutækifæri þar sem selja mætti, jafnframt erlendum varningi, hvers konar íslenskar vörur sem þá yrðu undanþegnar virðisaukaskatti. Tollfrjálsar verslanir eru víða erlendis í tengslum við hafnir og er varningur, sem keyptur er þar, ekki borinn um borð af kaupanda heldur sér viðkomandi verslun um að flytja varninginn um borð í skipið. Sá háttur mundi einnig verða hafður á hérlendis og rekstrarleyfishafi gerður ábyrgur fyrir því að rétt sé að málum staðið í hvívetna.
    Af því sem að framan greinir má ljóst vera að hér gæti verið um að ræða áfanga á leið til markaðssetningar íslenskrar framleiðslu.