Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. –
77
. mál.
77. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um húsnæðismál sýslumannsembættisins á Seyðisfirði.
Frá Hjörleifi Guttormssyni.
Hver er staða undirbúnings að úrbótum í húsnæðismálum embættis sýslumannsins á Seyðisfirði?
Hvaða möguleikar eru á að nýta núverandi húsnæði í þágu embættisins til frambúðar með endurbótum á því?
Hvenær reiknar ráðuneytið með að framkvæmdir við endurbætur eða nýbyggingu fyrir embættið hefjist?
Skriflegt svar óskast.