Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 103 . mál.
108. Fyrirspurn
til forsætisráðherra um endurskoðun á kosningalöggjöfinni.
Frá Siv Friðleifsdóttur.
Hvað líður framkvæmd á því ákvæði stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar sem segir markmið hennar vera „að endurskoða kosningalöggjöfina með það fyrir augum að hún verði einfaldari og tryggi jafnara vægi atkvæða milli kjördæma“?