Ferill 21. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 21 . mál.


135. Frumvarp til laga



um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 30. okt.)



1. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
    Í stað orðanna „Umsögn til ráðherra um umsóknir um markaðsleyfi“ í 2. tölul. 3. mgr. kemur: Útgáfu markaðsleyfa.
    Í stað orðanna „Umsögn til ráðherra um umsóknir“ í 3. tölul. 3. mgr. kemur: Afgreiðslu umsókna.
    Í stað orðanna „Umsögn til ráðherra um leyfi“ í 4. tölul. 3. mgr. kemur: Útgáfu leyfa.
    Við bætist ný málsgrein, er verður 4. mgr., svohljóðandi:
                  Ákvarðanir lyfjanefndar ríkisins má kæra til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

2. gr.


    Í stað orðanna „gefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið út“ í fyrri málslið 10. gr. laganna kemur: annast heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið útgáfu á.

3. gr.


    Í stað orðanna „1. nóvember 1995“ í 4. málsl. 2. mgr. 45. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 112/1994, sbr. 1. gr. laga nr. 122/1994, kemur: 15. mars 1996.

4. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða í lögunum:
    Í stað orðanna „1. júní 1995“ í 2. og 3. málsl. 2. tölul. kemur: 15. mars 1996.
    Í stað orðanna „1. nóvember 1995“ í 3. tölul. kemur: 15. mars 1996.

5. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.