Ferill 126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 126 . mál.
204. Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986, með síðari breytingum.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
Við 1. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Samþykki sveitarstjórn sameiningu sveitarfélagsins við önnur sveitarfélög á grundvelli ákvæðis þessa skal fara fram atkvæðagreiðsla innan sveitarfélagsins um sameininguna ef fyrir liggur ósk a.m.k. þriðjungs atkvæðisbærra íbúa sveitarfélagsins um atkvæðagreiðslu.