Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 170 . mál.


212. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um varnir gegn mengun sjávar.

Frá Katrínu Fjeldsted.



    Hyggst ráðherra beita sér fyrir afnámi þeirra ákvæða í lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, sem heimila ráðherra að leyfa m.a. að skipsflökum sé sökkt í sjó, í framhaldi af undirritun samnings um verndun Norðaustur-Atlantshafsins í París 1992?