Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 295, 120. löggjafarþing 75. mál: félagsþjónusta sveitarfélaga (fjárhagsaðstoð til sambúðarfólks).
Lög nr. 130 11. desember 1995.
Sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón hafa samkvæmt lögum þessum einnig karl og kona sem búa saman og eru bæði ógift, enda hafi sambúðin verið skráð í þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram.
Þingskjal 295, 120. löggjafarþing 75. mál: félagsþjónusta sveitarfélaga (fjárhagsaðstoð til sambúðarfólks).
Lög nr. 130 11. desember 1995.
Lög um breytingu á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, sbr. lög nr. 31/1994.
1. gr.
Við 19. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón hafa samkvæmt lögum þessum einnig karl og kona sem búa saman og eru bæði ógift, enda hafi sambúðin verið skráð í þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 6. desember 1995.