Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 236 . mál.


318. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um kvikmyndaauglýsingar í sjónvarpi.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Telur ráðherra að kvikmyndaauglýsingar í sjónvarpi, þar sem sýnd eru ofbeldisatriði úr kvikmyndum sem bannaðar eru börnum, samrýmist ákvæðum samkeppnislaga, sbr. sérstaklega 22. gr.?
    Ef svo er ekki, hvað hyggst ráðherra aðhafast í málinu?