Ferill 244. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 244 . mál.


330. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um ferjuflug um Keflavíkurflugvöll.

Frá Hjálmari Árnasyni og Drífu Sigfúsdóttur.



    Hyggst ráðherra beita sér sérstaklega fyrir því að svokallað ferjuflug fari um Keflavíkurflugvöll fremur en Reykjavíkurflugvöll í ljósi þess að öryggisbúnaður er meiri á fyrrnefnda staðnum?