Ferill 258. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 258 . mál.


435. Tillaga til þingsályktunar



um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Eistlands.

Frá utanríkismálanefnd.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Eistlands sem gerður var í Zermatt í Sviss 7. desember 1995.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Hinn 7. desember 1995 var undirritaður í Zermatt í Sviss fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Eistlands. Áður höfðu Noregur og Sviss gert tvíhliða fríverslunarsamninga við Eistland og tvíhliða fríverslunarsamningur milli Íslands og Eistlands hafði verið áritaður og var tilbúinn til undirritunar.
    Í öllum meginatriðum er fríverslunarsamningurinn milli EFTA-ríkjanna og Eistlands samhljóða þeim tvíhliða samningum sem einstök EFTA-ríki höfðu gert við Eistland, að meðtöldum fríverslunarsamningi milli Íslands og Eistlands, sem hafði verið áritaður.
    Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Eistlands er mjög hliðstæður þeim fríverslunarsamningum, sem EFTA hefur gert við ríki í Mið- og Austur-Evrópu. Samningurinn kveður á um fríverslun milli EFTA-ríkja og Eistlands með iðnaðarvörur (25.–97. kafli í samræmdri vörulýsingar- og vöruheitaskrá). Einnig nær samningurinn til fisks og fiskafurða, sbr. II. viðauka samningsins, svo og til vara sem unnar eru að hluta til eða að öllu leyti úr landbúnaðarvörum (unnar landbúnaðarvörur). Þessar vörur eru sérstaklega tilgreindar og nánar kveðið á um framkvæmd viðskipta með þær í bókun A við samninginn.
    EFTA-ríkin og Eistland afnema alla innflutningstolla á iðnaðarvörum, sem upprunnar eru í þessum löndum, og gjöld, sem hafa samsvarandi áhrif, frá og með gildistöku fríverslunarsamningsins. Hið sama gildir um fisk og fiskafurðir.
    Ákvæði er í samningnum þess efnis að einstök EFTA-ríki og Eistland geri tvíhliða samninga um landbúnaðarmál til þess að stuðla að auknum viðskiptum með landbúnaðarvörur.
    Fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Eistlands er birtur sem fylgiskjal með þingsályktunartillögu þessari.



Samningur milli Efta-ríkjanna


og Eistlands.






(369 síður.)