Ferill 44. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 44 . mál.


453. Framhaldsnefndarálit


um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1995.

Frá minni hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur haft frumvarpið til meðferðar frá 2. umræðu 5. desember sl. Veruleg hækkun mun verða á fjárheimildum frumvarpsins.
    Við 2. umræðu var gerð grein fyrir nokkrum veigamiklum atriðum sem þá þegar var ljóst að áttu eftir að auka fjárlagahallann, t.d. málefni Sjúkrahúss Reykjavíkur og Sólheima í Grímsnesi. Þar hafa nú bæst við beiðnir um auknar fjárheimildir fyrir árið 1995 sem nema samtals 93,7 millj. kr.
    Við 2. umræðu voru afgreiddar tillögur um auknar fjárheimildir upp á 5,3 milljarða kr. Eftir nána yfirferð og athugun beiðna milli umræðna hafa verið afgreiddar fyrir 3. umræðu hækkanir um 522,9 millj. kr. þannig að halli fjárlaga 1995 verður því enn meiri en búist var við og heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs verður með viðbótinni u.þ.b. 31,4 milljarðar kr.
    Þau atriði sem hafa komið minni hluta nefndarinnar mest á óvart er langur listi óuppgerðra skuldbindinga ríkissjóðs, allt að 21 ári aftur í tímann eða til ársins 1974. Hér er vísað til tillagna um 6 millj. kr. framlag til Hins íslenska bókmenntafélags á fjáraukalögum fyrir árið 1995, en þar að auki er gerð ný tillaga um 12 millj. kr. framlag á fjárlögum 1996 til sama aðila.
    Minni hlutinn áréttar þá skoðun sína að fjárvöntun, sem löngu er vitað um, eigi að koma fram með rökstuddum beiðnum strax og hún liggur fyrir. Vísað er til álits Ríkisendurskoðunar, sem gaf umsögn um frumvarpið, og þeirra réttmætu ábendinga sem í þeirri umsögn eru. Mikilvægt er að fram komi hvers vegna útgjaldatilefni voru ekki séð fyrir þegar fjárlög ársins voru afgreidd þannig að ganga hefði mátt frá fjárheimildum við fjárlagaafgreiðsluna.
    Einstakar tillögur, sem settar eru fram á sérstöku þingskjali, eru að fjárhæð allt frá 600 þús. kr. til 150 millj. kr.
    Minni hlutinn vísar til nefndarálits við 2. umræðu um fjáraukalög 1995 og áskilur sér rétt til að styðja einstakar tillögur um viðbótarheimildir en mun að öðru leyti sitja hjá við afgreiðslu frumvarpsins.

Alþingi, 20. des. 1995.


Gísli S. Einarsson,

Bryndís Hlöðversdóttir.

Kristinn H. Gunnarsson.

frsm.


Kristín Halldórsdóttir.