Ferill 266. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 266 . mál.


493. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um endurbætur á aðgengi opinberra bygginga og þjónustustofnana.

Frá Ögmundi Jónassyni.



    Hefur ráðuneytið gengið eftir því við sveitarstjórnir að farið verði að ákvæðum í 34. gr. laga nr. 59/1992 og gerðar áætlanir um endurbætur á aðgengi opinberra bygginga og þjónustustofnana?
    Ef ekki, hyggst ráðuneytið þá beita sér fyrir því að slíkar áætlanir verði gerðar?