Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 354 . mál.


614. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vá vegna olíuflutninga.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Mun ráðherra beita sér fyrir því hér heima og erlendis að kröfur um gerð, búnað og siglingu skipa sem flytja olíu til landsins verði hertar og samræmdar, m.a. í ljósi ítrekaðra stórslysa við Bretlandseyjar?
    Hvaða ráðstafanir koma einkum til álita til að draga úr líkum á strandi eða öðrum áföllum sem leitt geta til stórfelldrar mengunar vegna olíuflutninga við strendur landsins?