Ferill 373. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 373 . mál.


653. Tillaga til þingsályktunar



um friðlýsingu Hvítár/Ölfusár og Jökulsár á Fjöllum.

Flm.: Kristín Halldórsdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,


Svavar Gestsson, Össur Skarphéðinsson.



    Alþingi ályktar að fela umhverfisráðherra að undirbúa lagasetningu um friðlýsingu Hvítár/Ölfusár frá upptökum í Langjökli til Ölfusárósa og Jökulsár á Fjöllum frá upptökum í Vatnajökli til ósa í Öxarfirði.

Greinargerð.


    „Því er nú mjög á lofti haldið, og vissulega með veigamiklum rökum, að í fossum landsins búi nokkuð af framtíð okkar þjóðar, er byggist á þeim verðmætum, sem mæld eru í kílówattstundum. En þar við liggur einnig brot af framtíðarhamingju þjóðarinnar, að hún gleymi því ekki, að í fossum landsins búa einnig verðmæti, sem ekki verða metin til fjár, en mælast í unaðsstundum.” (Sigurður Þórarinsson, Fossar á Íslandi, Fjölrit Náttúruverndarráðs, 1978.)
    Það heyrist nú æ oftar að Íslendingar ættu að gerast forustuþjóð á sviði umhverfismála. M.a. kemur það glöggt fram í skýrslu umhverfisráðherra um ástand og þróun umhverfismála á Íslandi í febrúar 1995. Þar segir í kafla um viðfangsefni og framtíðaráherslur á bls. 77: „Lögð er áhersla á að Ísland verði um næstu aldamót fyrirmynd annarra vestrænna ríkja í umhverfismálum eða með öðrum orðum að Ísland verði þá án nokkurs vafa hreinasta land hins vestræna heims og ímynd hreinleika og sjálfbærrar þróunar tengist allri atvinnustarfsemi í landinu.“ Á bls. 78–79 eru svo taldar upp leiðir að því marki og ein leiðin er: „Að unnið verði að því að fjölga þjóðgörðum, friðlýstum svæðum og náttúruminjum.“
    Of lítið hefur gerst í því efni á undanförnum árum. Þó ber að geta laga um vernd Breiðafjarðar, sem sett voru í mars 1995, en samkvæmt þeim er nú unnið að verndaráætlun fyrir allt það svæði. Þá vinnur samvinnunefnd héraðsnefnda um þessar mundir að svæðisskipulagi fyrir miðhálendi Íslands og samkvæmt upplýsingum skipulagsstjóra ríkisins má vænta fyrstu tillagna að landnotkun á hálendinu síðar á þessu ári. Vonandi verður þar að finna tillögur um friðun og varðveislu lands sem er að sjálfsögðu ein leið landnýtingar. Þessi tillaga gerir ráð fyrir mikilvægu skrefi í því efni sem er að tvær ár fái að renna í friði um byggð og óbyggð frá upptökum til ósa.
    Sú kynslóð, sem nú lifir í þessu landi, hefur verið virkjanaglöð. Hver stóráin á fætur annarri hefur verið fjötruð í viðjar steinsteypu og sérstæð og einstök landsvæði eyðilögð um aldur og ævi eða stórskemmd. Á teikniborðum verkfræðinga hafa báðar þær ár, sem hér um ræðir, fengið sömu örlög. Í kílóvattstundum talið býr að öllum líkindum í þeim um 1 / 6 þeirrar vatnsorku sem sumir telja nú að hagkvæmt geti orðið að virkja. Þannig bíða fullmótaðar áætlanir um virkjun fjölmargra orkulinda landsins, en minna fer fyrir áætlunum um verndun þeirra. Þó hefur verið gerð tilraun í þá átt. 24. apríl 1989 samþykkti Alþingi svofellda ályktun:
    „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta undirbúa á vegum Náttúruverndarráðs í samráði við yfirvöld orkumála áætlun um verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða, fossa og hvera. Drög að slíkri áætlun verði lögð fyrir Alþingi til kynningar fyrir árslok 1990 og áætlunin fullbúin til staðfestingar síðar.“
    Framkvæmd ályktunar Alþingis, sem samþykkt var að frumkvæði Hjörleifs Guttormssonar, hefur gengið hægar en til stóð. Náttúruverndarráð skilaði skýrslu um málið til umhverfisráðuneytis í nóvember 1994, en af frekari úrvinnslu hefur enn ekki orðið.
    Í heiminum hefur á undanförnum áratugum mjög litlu fé verið varið til rannsókna á annars konar orkugjöfum en olíu og kjarnorku. Á þessu hlýtur að verða breyting og hver veit nema finnist leiðir til að virkja bæði föll sjávar og vinda himinsins. Vafasamt er að afkomendur okkar yrðu okkur þakklátir fyrir virkjanagleðina ef á landinu væri ekki eftir eitt einasta eintak af óraskaðri á eða allar þær dýrmætustu, í unaðsstundum talið, eyðilagðar.
    Hvítá/Ölfusá og Jökulsá á Fjöllum eru án efa merkilegustu stórár sem enn fá að renna ótruflaðar um land okkar. Í báðum ánum eru miklir fossar, sem laða að fjölda ferðamanna, Gullfoss í Hvítá og Dettifoss ásamt þremur öðrum fossum í Jökulsá á Fjöllum, en um þá fossa sagði Sigurður Þórarinsson í fossaskrá sinni: „Fossarnir 3–5 eru samstæða, sem ekki á víða sinn líka á jarðarkringlunni.“ Umhverfi ánna er mjög fjölbreytt og sérstætt, bæði hvað varðar náttúrufar og þá sögu þjóðarinnar, sem lesa má úr umhverfi þeirra. Hvítá/Ölfusá rennur að miklu leyti um blómlegar byggðir, sem löngum hafa hýst biskupa og höfðingja, og meðfram henni eru mikilvæg votlendissvæði. Jökulsá rennur um óbyggðir, þar sem hírðust útlagar fyrr á öldum en eru nú ýmist friðlýstar eða á náttúruminjaskrá, og á láglendi rennur áin um einhvern fegursta stað landsins, Jökulsárgljúfur, sem eru að hálfu leyti friðlýst sem þjóðgarður. Óbætanlegt tjón yrði á náttúru Íslands ef ár þessar fengju ekki að njóta friðar um ókomin ár, enda nóg til af annarri orku til að virkja, bæði í vatnsföllum og á jarðhitasvæðum.
    Í friðlýsingum ánna þarf að felast:
    Vatnsmagni ánna verði ekki breytt af mannavöldum, t.d. með því að veita vatni sem til þeirra fellur inn á vatnasvið annarra áa.
    Vatnsyfirborði eða farvegum ánna verði ekki breytt af mannavöldum með uppistöðulónum, stíflum eða öðrum framkvæmdum eða mannvirkjum.
    Mannvirkjagerð og jarðraski meðfram ánum verði haldið í lágmarki og í óbyggðum verði ekki komið fyrir mannvirkjum sem áberandi eru frá árbökkunum.
    Losun mengandi úrgangsefna í árnar eða í ár sem til þeirra falla verði ekki leyfð.
    Náttúrulegt lífríki í og við árnar njóti verndar.
    Umferðarréttur almennings meðfram ánum verði tryggður.
    Aðstöðu til handa ferðamönnum verði komið upp meðfram ánum en þess jafnframt gætt við skipulag og stjórnun ferðamennsku að svæðunum sé ekki spillt.
    Tillaga sama efnis var lögð fram á 113. löggjafarþingi en dagaði þá uppi í nefnd. Þáverandi þingkonur Kvennalistans fluttu tillöguna undir forustu Sigrúnar Helgadóttur líf- og umhverfisfræðings. Eins og að framan segir er margt til marks um aukinn skilning og áhuga á verndun umhverfis og sérstæðrar náttúru landsins. Má því ætla að efni tillögunnar eigi nú hljómgrunn.