Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 427 . mál.


757. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um breytingar á réttarstöðu fólks við gildistöku EES-samningsins.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hvaða breytingar urðu á réttarstöðu fólks á sviði heilbrigðis- og tryggingamála við flutninga milli norrænna landa við gildistöku EES-samningsins 1. janúar 1994?
    Féllu niður eða breyttust ákvæði í þágildandi samningum milli norrænna landa á þessu sviði? Ef svo er, hafa einhverjar breytingar eða leiðréttingar verið gerðar síðan og þá hverjar? Sé svo ekki, eru þær þá áformaðar og hvenær?