Ferill 466. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 466 . mál.
801. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um jafnréttisfræðslu fyrir dómara.
Frá Bryndísi Hlöðversdóttur.
Hefur ráðherra í hyggju að verða við tilmælum til íslenskra stjórnvalda frá nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám alls misréttis gegn konum sem lúta að kynningu meðal dómara á sáttmála um afnám allrar mismununar gegn konum? Ef svo er, á hvern hátt er fyrirhugað að standa að þeirri fræðslu?