Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 494 . mál.


853. Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um merkingar afurða erfðabreyttra lífvera.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



    Hver er afstaða ráðherra til þess álitaefnis að hafi vara í sér fólgna afurð erfðabreyttra lífvera skuli það tekið fram á umbúðum hennar?
    Hver er og hefur verið afstaða ríkisstjórnarinnar og umhverfisráðuneytisins til væntanlegrar tilskipunar Evrópusambandsins um ný matvæli (novel foods) þar sem fjallað er um framangreint álitamál?