Ferill 271. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 271 . mál.
867. Frumvarp til laga
um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987.
(Eftir 2. umr., 24. apríl.)
1. gr.
Á eftir 64. gr. kemur ný grein, 64. gr. a, svohljóðandi:Dómsmálaráðherra getur sett reglur um heimild eiganda ökutækis til að velja tiltekna bókstafi og tölustafi á skráningarmerki ökutækisins (einkamerki).
Fyrir rétt til einkamerkis skal greiða 25.000 kr., auk gjalds fyrir skráningu og skráningarmerki. Fyrir skráningu á flutningi einkamerkis af einu ökutæki á annað í samræmi við reglur sem settar eru skv. 1. mgr. skal greiða sama gjald og fyrir skráningu eigendaskipta að ökutæki. Gjaldið renni til Umferðarráðs.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.